Um okkur

Reykjavík Spa

Reykjavík Spa

Reykjavík Spa er stórglæsileg snyrti- og nuddstofa með fallegri heilsulind, þar sem er lögð áhersla á rólegt, slakandi og endurnærandi umhverfi.

Snyrtistofan er búin sex rúmgóðum herbergjum sem eru hönnuð fyrir fjölbreytt úrval af snyrti-, nudd- og spameðferðum. Starfsfólk okkar tekur vel á móti öllum gestum og markmið okkar er að allir gangi út hæstánægðir og endurnærðir. Í heilsulindinni Reykjavík Spa er að finna tvo rúmgóða heita potta 39°C og 41°C, infrarauða saunu og gufuklefa. Einnig er hvíldarsvæði með hægindastólum, róandi tónlist og notalegri birtu. Allir gestir hafa aðgang að glæsilegum búningsklefum og fá baðslopp, handklæði og inniskó til afnota.

Fyrir þá sem vilja heldur stunda líkamsrækt er heilsuræktin okkar frábær kostur. Þar eru öll helstu tæki fyrir þá sem vilja taka verulega á því í þægilegu andrúmslofti. Einungis ætluð gestum hótelsins.

Vinsamlegast athugið að engin ábyrgð er tekin á lausamunum gesta meðan á dvöl stendur. Athugið að notkun myndavéla og síma er stranglega bönnuð í búningsklefum og baðstofu. Aldurstakmark er miðað við 16 ára aldur.

Aðgangur í baðstofu er innifalinn með öllum bókuðum snyrti- og nudd meðferðum.

Allar styrktarbeiðnir fara fram hér

Starfsfólk
Starfsfólk

Alma Rós – rekstrarstjóri og snyrtifræðingur

Selka Sólbjört – móttaka