Skilmálar
Skilmálar fyrir Reykjavík Spa
Afbókunarskilmálar
Vinsamlegast athugið að breyta þarf eða afbóka bókaðar nuddmeðferðir með að minnsta kosti sólarhrings fyrirvara. Að öðrum kosti verður innheimt gjald sem nemur allt að 100% af verði meðferðarinnar. Afbókanir fara fram í gegnum Noona-appið eða á vefsíðu Noona.

Ef ekki er hægt að afbóka í gegnum Noona er hægt að hringja í 510 5190 eða senda tölvupóst á hilton@reykjavikspa.is fyrir Reykjavík Spa Hilton eða hringja í 510 5180 eða senda tölvupóst á askja@reykjavikspa.is fyrir Reykjavík Spa Öskju.
Viðskiptavinir eru vinsamlegast beðnir um að mæta tímanlega í bókaðar meðferðir. Seinkun getur haft í för með sér styttri meðferðartíma.
Aldurstakmark í Reykjavík Spa og fyrir nuddmeðferðir er 16 ár. Einstaklingar yngri en 18 ára þurfa samþykki foreldris eða forráðamanns fyrir nuddmeðferð. Taka þarf fram aldur við bókun ef viðkomandi er yngri en 18 ára.
Reglur og viðmið um nuddmeðferðir
1. Hreinlæti og persónuleg umhirða
Nuddmeðferðir fela í sér líkamlega snertingu og við meðferðirnar eru notaðar olíur og krem. Gott persónulegt hreinlæti er mikilvægt, bæði fyrir gesti og nuddara, og eru gestir því beðnir um að fara í sturtu fyrir meðferð. Jafnframt er gerð krafa um að nuddarar gæti vel að eigin hreinlæti og snyrtilegu, faglegu útliti. Bæði nuddari og gestur hafa rétt til að hætta við meðferð ef persónulegu hreinlæti er ábótavant.
2. Mæting í meðferð
Gestir eru beðnir um að mæta stundvíslega á biðsvæði heilsulindarinnar, nýkomnir úr sturtu og klæddir baðslopp. Meðferðarherbergið er ekki ætlað til fataskipta.
3. Heilsufar og ábyrgð
Gestir þiggja nuddmeðferðir á eigin ábyrgð. Þeir sem glíma við sjúkdóma eða önnur heilsufarsvandamál ættu ávallt að ráðfæra sig við lækni áður en þeir fara í nudd.
4. Fyrirkomulag nuddmeðferða
Nuddmeðferðir fylgja að jafnaði ákveðnu fyrirkomulagi nema gestur óski sérstaklega eftir að áhersla sé lögð á tiltekin svæði líkamans, svo sem bak, höfuð eða fætur. Gestir sem fara reglulega í nudd eru hvattir til að ræða óskir sínar og markmið með meðferðinni við nuddarann svo hægt sé að mæta þörfum þeirra sem best.
5. Áfengi, vímuefni og lyf
Neysla áfengis og annarra vímuefna fer ekki saman við nuddmeðferðir. Bæði gestir og nuddarar skulu forðast áfengisneyslu í að minnsta kosti 12 klukkustundir fyrir meðferð. Gestir eru einnig beðnir um að láta nuddara vita ef þeir taka bólgueyðandi lyf eða verkjalyf.
6. Klæðnaður og næði
Gestir ráða sjálfir hvort þeir eru í nærfötum meðan á meðferð stendur. Ávallt er gætt að næði gestsins með því að hylja líkamann með handklæði eða laki þannig að aðeins sá líkamshluti sem verið er að meðhöndla sé óhulinn.
7. Aldurstakmark og fylgd
Lágmarksaldur fyrir nuddmeðferðir hjá Reykjavík Spa Hilton er 16 ár. Gestir yngri en 18 ára þurfa samþykki foreldris eða forráðamanns. Gestir geta óskað eftir að hafa þriðja aðila viðstaddan meðan á meðferð stendur. Sá aðili þarf að virða sömu reglur um hegðun og samskipti og gilda innan heilsulindarinnar.
8. Trúnaður og fagleg vinnubrögð
Reykjavík Spa Hilton er fagleg meðferðarstöð þar sem unnið er samkvæmt ströngum siðareglum. Fyllsta trúnaðar er gætt um málefni gesta, nema þegar um er að ræða háttsemi eða athafnir sem brjóta gegn lögum.
9. Hegðun og samskipti
Nuddmeðferðir hjá Reykjavík Spa Hilton eru fagleg þjónusta þar sem gagnkvæm virðing og viðeigandi framkoma eru grundvallaratriði. Óviðeigandi hegðun eða ummæli, hvort sem þau koma frá gesti eða nuddara, leiða til þess að meðferð er stöðvuð tafarlaust.
Ef meðferð er stöðvuð vegna óviðeigandi hegðunar gests ber honum að greiða fullt verð fyrir meðferðina. Alvarleg brot kunna að verða tilkynnt til lögreglu.